6. maí 2025

Endurnýjun umsókna fyrir skólaárið 2025-26

kæru nemendur og forráðamenn

tveir ungir trommunemendur

Umsóknarferli í nýjum gagnagrunni íslenskra tónlistarskóla samræmist því miður ekki þeim kröfum um upplýsingar sem við gerum til umsókna um skólavist. 
Því biðjum við alla nemendur (forráðamenn) sem stunda nám við skólann á þessu skólaári, að svara þessum tölvupósti. 
 
• Þeir sem ætla að halda áfram námi næsta skólaár verða að svara þessum pósti með nafni nemanda og hvort hann ætli að halda áfram námi eða ekki.
Allir verða að láta vita af eða á.
 
• Ef þið þurfið að tilkynna breytingar á grunnupplýsingum, eins og um breytt netfang, símanúmer, heimilisfang eða beiðni um að skipta um hljóðfæri eða breyta námshlutfalli, biðjum við ykkur um að láta okkur vita, hvort sem það er um breytingu eða vegna beiðni um annað.
 
Síðasti dagur til að svara þessum tölvupósti og þar með til að tryggja sér skólavist næsta skólaár, er föstudagurinn 9.maí n.k.

Deila frétt