Gamanóperan Gianni Schicchi í Stapa

Óperufélagið Norðuróp og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar eru að setja upp gamanóperuna „Gianni Schicchi“ eftir ítalska tónskáldið Giacomo Puccini.
Óperan er þýdd og staðfærð á Suðurnesin af Jóhanni Smára Sævarssyni listrænum stjórnanda Norðuróps og söngkennara við Tónlistarskólann.
Söguþráðurinn er í stuttu máli sá, að gamall ríkur karl liggur fyrir dauðanum og gráðugir ættingjarnir eru mættir til hans í von um arf. En karlinn vissi um græðgi þeirra og von um að komast yfir auðæfi hans og hafði því annað í huga. Ættingjarnir áttuðu sig fljótt á því að það yrði ekki svo auðvelt og í örvæntingu sinni leita þeir til Gianni Schicchi, ítalsks manns, og bjóða honum gull og græna skóga ef hann gæti leyst málið. Gianni gerir það, en þó ekki alveg eins og þau vonuðust til aðyrði.
Uppfærslan er í Stapa, Hljómahöll með sviðsmynd, hljómsveit og öðru sem til þarf.
Sýningar verða sem hér segir:
Föstudagur 15: maí kl. 20 Frumsýning
Laugardagur 16. maí kl.16 2. sýning
Sunnudagur 17. maí kl. 16 Lokasýning
Stjórnandi og leikstjóri: Jóhann Smári Sævarsson.
Konsertmeistari: Rozalia Mietus.
Miðaverð er 7900 kr. og hægt að kaupa miða hér í gegnum tix.is
Nemendur skólans og eldri borgarar fá miða á 6900 kr.

