Hljóðfærakynning fyrir Forskóla 2 á Degi Tónlistarskólans

5. febrúar 2026


Tónlistarskóli Reykjanesbæjar efnir til hinnar árlegu hljóðfærakynningar fyrir nemendur Forskóla 2, laugardaginn 7. febrúar n.k., sem er árlegur „Dagur tónlistarskólans“ hér á landi. Nemendur í Forskóla 2 eru öll börn í Reykjanesbæ í 2. bekk grunnskólanna.

Dagskráin hefst kl. 10:30 í Stapa, Hljómahöll, með stuttum tónleikum forskólanemendanna þar sem þeir flytja 2 hressileg lög við undirleik kennara- og nemendahljómsveitar Tónlistarskólans. Að tónleikunum loknum færa allir sig yfir í Tónlistarskólann þar sem forskólanemendurnir fá kynningar á þeim hljóðfærum sem hæfa ungum börnum að læra á. Það verða kennarar skólans sem sjá um kynningarnar og njóta aðstoðar nokkurra nemenda sem komnir eru vel áleiðis í hljóðfæranámi. Nemendur forskólans fá ekki aðeins kynningu, heldur fá þeir að handleika og prófa hljóðfærin og verður þeim leiðbeint við það. 
Hljóðfærakynningunni lýkur kl.12:15.

Deila frétt