TR tekur þátt í Nótunni, laugardaginn 18. apríl 2026
"Nótan-uppskeruhátíð tónlistarskóla“ stendur fyrir tónleikum á nokkrum stöðum á landinu n.k. laugardag, þann 18. apríl, þar sem fram koma nemendur tónlistarskóla eftir landsvæðum.
Í Salnum í Kópavogi verða tvennir tónleikar fyrir Kragann (höfuðborgarsvæðið utan Reykjavíkur, Suðurland og Suðurnes). Alls munu 10 tónlistarskólar frá þessu svæði taka þátt. Fyrri tónleikarnir verða kl.11:00 og þeir seinni kl.13:00.
Við tökum sjálfsögðu þátt í hátíðinni og teflum fram þremur atriðum á tónleikunum kl.13:00. Sara Cvjetkovic, píanónemandi mun ásamt Mariiu Ishchenko kennaranum sínum, leika fjórhent verkið „Marche Militaire Ópus 51 Nr.1“ eftir Franz Schubert. Strengjakvartett sem þær Gisselle Pinto, Vanessa Godlewska, Helena Ósk Vilhjálmsdóttir og Elin Mia Hardonk skipa, munu flytja lagið „Promise“ eftir Laufeyju Lín Jónsdóttur í glænýrri útsetningu eftir Þórunni Harðardóttur. Þriðja atriðið frá okkur er tríó-atriði úr gamanóperunni „Gianni Schicchi“ eftir ítalska óperutónskáldið Giacomo Puccini. Flytjendur eru þær Birna Rúnarsdóttir, Jelena Raschke og Bryndís Schram Reed, en að auki mun fjórði aðilinn, Kristinn Thor Schram Reed, koma við sögu. Við píaníóið verður Antonía Hevesi.
Aðgangur að tónleikum Nótunnar er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir. Við hvetjum alla sem hafa tök á, að mæta í Salinn í Kópavogi á laugardaginn. Þetta verða frábærir tónleikar.

