Óperu tónleikar í Stapa

13. mars 2026
Mynd af Giacomo Puccini
Óperustúdíó Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verður með Masterklassa í óperusöng í Stapa laugardaginn 14. og sunnudaginn 15. mars n.k. fyrir nemendur Óperustúdíósins. Leiðbeinandi verður óperusöngkonan Arnheiður Eiríksdóttir sem gerir nú garðinn frægan hér heima og erlendis. Hún var valin ungstirni óperuheimsins á Alþjóðlegu Óperuverðlaununum í Munchen árið 2024. Arnheiður er nú fastráðinn einsöngvari við Þjóðaróperuna í Prag. Hún söng eftirminnilega á Galatónleikum Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í Stapa haustið 2024 og það er mikill fengur að fá hana aftur til liðs við okkur.

Dagskrá sunnudagsins endar svo með glæsilegum óperutónleikum í Stapa kl.16:00 þar sem þátttakendur masterklassans koma fram og hver veit nema Arnheiður "taki lagið" líka.

Á tónleikana verður gengið inn um inngang Stapa. Frítt inn og allir hjartanlega velkomnir.

Frjáls framlög verða hins vegar vel þegin, en þau munu renna upp í kostnað við næstu uppfærslu Óperustúdíósins. 
Um er að ræða gamanóperuna Gianni Schicchi eftir Puccini sem sýnd verður í Stapa. Frumsýning verður föstudaginn 15. maí n.k.

Deila frétt