Nú er réttur tími til að sækja um skólavist í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar!

Nú er rétti tíminn fyrir nýja nemendur til að sækja um nám við skólann fyrir skólaárið 2026-2027.
Getum bætt við okkur nokkrum nemendum skv. eftirfarandi:
Málmblásturshljóðfæri (Trompet, Horn, Básúna, Túba).
Tréblásturshljóðfæri (Blokkflauta, Blokkflauta skv. Suzuki-aðferðinni, Þverflauta, Klarinett, Saxófónn).
Slagverk og Trommur.
Strengjahljóðfæri (Fiðla, Víóla, Selló, Kontrabassi).
Píanó, Píanó skv. Suzukiaðferðinni.
Harmonika, Orgel (undanfari er píanónám a.m.k. upp að grunnprófi).
Söngur klassískrar deildar, Söngleikjadeild og Óperustúdíó.
Nám innan rytmískrar deildar : Rafgítar, Rafbassi, Kontrabassi, Píanó, söngur.
Tónver: Kennd er vinnsla tónlistar á tölvur sem og grunnur í hljóðupptökum og eftirvinnslu.
Einnig býður skólinn upp á sérstakt nám í tónfræði og tónsmíðum.
Við vekjum athygli á sérstöku lúðrasveitarnámi á blásturshljóðfæri fyrir nemendur sem fara í 3., 4. og 5. bekk næsta skólaár.
Sjá nánar á vefsíðu undir flipanum sækja um nám og/eða á skrifstofu skólans í síma 420-1400.
Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9-17 og föstudaga frá kl. 9-16.

