Vegna veðurs, fimmtudag 26. mars

25. mars 2026

Kennsla fellur niður fyrir hádegi

Vegna slæmrar veðurspár, sem hljóðar uppá appelsínugula viðvörun, sem og vegna spár um erfið akstursskilyrði á Reykjanesbrautinni, en margir af kennurum okkar koma hingað af höfuðborgarsvæðinu, fellur hljóðfærakennslan í grunnskólunum niður í fyrramálið og fram yfir hádegi. Samkvæmt veðurspám á verðið að ganga niður strax upp úr hádeginu og við vonumst til að það gangi eftir. Það verður því eðlilegt skólastarf upp úr hádeginu í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Deila frétt