Vortónleikar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar 2026

Framundan eru fjölmargir vortónleikar eins og venjulega og stendur hver kennari fyrir tónleikum með nemendum sínum. Kennarar tilkynna sjálfir til nemenda/forráðamanna hvenær tónleikar verða en yfirlit yfir vortónleika skólans er
að finna í upplýsingaritinu okkar Tónvísi, sem er hér fyrir neðan.
Öll að sjálfsögðu velkomin á alla tónleika.
Varðandi endurnýjun umsókna fyrir næsta skólaár, þá verða þeir sem ætla að hætta eða óska eftir breytingum að senda
tölvupóst á skólann tonlistarskoli@tonrnb.is ekki seinna en föstudaginn 15. maí. Aðrir nemendur færast yfir á skólaárið 2026-2027 án breytinga.
Fyrir nýjar umsóknir skal sækja um á vef skólans, hér undir hnappnum „Sækja um nám“.
Það er alltaf opið fyrir nýjar umsóknir en ef nemandi vill eiga möguleika á því að
komast að næsta skólaár, er mjög æskilegt að sótt sé um eigi síðar en föstudaginn 22.
maí n.k.
Skrifstofan veitir nánari upplýsingar í síma 420-1400 til kl. 16:00 föstudaginn 12. júní.
Síðasti kennsludagur skólaársins er föstudagurinn 22. maí, en skólaslit verða eins og fyrri ár í Stapa föstudaginn 29. maí kl. 18:00. Þar verða áfangaprófsskírteini afhent sem og vitnisburðarblöð vetrarins. Fulltrúi Íslandsbanka mun tilkynna nýjan handhafa Hvatningarverðlauna bankans fyrir næsta skólaár og að venju verður áhugaverður tónlistarflutningur.
Hvetjum nemendur eindregið til að mæta og slíta skólaárinu.
Smellið hér til að hlaða niður Tónvísi (pdf):

