Rytmísk deild

Hugtakið rytmísk tónlist er safnheiti yfir djass, rokk, popp og skyldar tónlistargreinar sem ekki teljast til klassískrar tónlistar. Spuni, samleikur og að leika eftir eyra eru undirstöður í náminu, en nám í rytmískri tónlist getur hafist á ýmsum aldri.

Hægt er að stunda rytmískt nám frá upphafi skólagöngu og hentar það vel þeim sem stunda nám á rafgítar, rafbassa, píanó, trommusett og söng. Hins vegar er mögulegt að nemendur sem lokið hafa klassísku grunnprófi á sitt hljóðfæri, hefji rytmískt nám í miðnámi. Þetta hentar vel þeim sem stunda nám á blásturs- eða strokhljóðfæri og píanó.