Fréttir

25. mars 2026
Vegna slæmrar veðurspár, sem hljóðar uppá appelsínugula viðvörun, sem og vegna spár um erfið akstursskilyrði á Reykjanesbrautinni, en margir af kennurum okkar koma hingað af höfuðborgarsvæðinu, fellur hljóðfærakennslan í grunnskólunum niður í fyrramálið og fram yfir hádegi. Samkvæmt veðurspám á verðið að ganga niður strax upp úr hádeginu og við vonumst til að það gangi eftir. Það verður því eðlilegt skólastarf upp úr hádeginu í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
24. mars 2026
Miðvikudaginn 18. mars 2026 voru haldnir stór-tónleikar Forskóla 2 í Stapa sem heppnuðust ákaflega vel. Með stórum hópi forskólaneman spilaði eldri Lúðrasveit Tónlistarskólans undir stjórn Ragnheiðar Eirar Magnúsdóttur.
13. mars 2026
Óperustúdíó Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verður með Masterklassa í óperusöng í Stapa laugardaginn 14. og sunnudaginn 15. mars n.k. fyrir nemendur Óperustúdíósins. Leiðbeinandi verður óperusöngkonan Arnheiður Eiríksdóttir sem gerir nú garðinn frægan hér heima og erlendis. Hún var valin ungstirni óperuheimsins á Alþjóðlegu Óperuverðlaununum í Munchen árið 2024. Arnheiður er nú fastráðinn einsöngvari við Þjóðaróperuna í Prag. Hún söng eftirminnilega á Galatónleikum Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í Stapa haustið 2024 og það er mikill fengur að fá hana aftur til liðs við okkur. Dagskrá sunnudagsins endar svo með glæsilegum óperutónleikum í Stapa kl.16:00 þar sem þátttakendur masterklassans koma fram og hver veit nema Arnheiður "taki lagið" líka. Á tónleikana verður gengið inn um inngang Stapa. Frítt inn og allir hjartanlega velkomnir. Frjáls framlög verða hins vegar vel þegin, en þau munu renna upp í kostnað við næstu uppfærslu Óperustúdíósins. Um er að ræða gamanóperuna Gianni Schicchi eftir Puccini sem sýnd verður í Stapa. Frumsýning verður föstudaginn 15. maí n.k.
5. febrúar 2026
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar efnir til hinnar árlegu hljóðfærakynningar fyrir nemendur Forskóla 2, laugardaginn 7. febrúar n.k., sem er árlegur „Dagur tónlistarskólans“ hér á landi. Nemendur í Forskóla 2 eru öll börn í Reykjanesbæ í 2. bekk grunnskólanna. Dagskráin hefst kl. 10:30 í Stapa, Hljómahöll, með stuttum tónleikum forskólanemendanna þar sem þeir flytja 2 hressileg lög við undirleik kennara- og nemendahljómsveitar Tónlistarskólans. Að tónleikunum loknum færa allir sig yfir í Tónlistarskólann þar sem forskólanemendurnir fá kynningar á þeim hljóðfærum sem hæfa ungum börnum að læra á. Það verða kennarar skólans sem sjá um kynningarnar og njóta aðstoðar nokkurra nemenda sem komnir eru vel áleiðis í hljóðfæranámi. Nemendur forskólans fá ekki aðeins kynningu, heldur fá þeir að handleika og prófa hljóðfærin og verður þeim leiðbeint við það. Hljóðfærakynningunni lýkur kl.12:15.
26. nóvember 2025
Miðvikudaginn 26. nóvember 2025 er vinnustytting hér í Tónlistarskólnum. Það verður því engin kennsla þann dag, þar með talin forskóla-kennsla í grunnskólum.
6. nóvember 2025
Sunnudaginn 9. nóvember kl. 16:00 mun Strengjasveitin Spiccato spila Tchaikovsky Serenöðu fyrir strengi ásamt nokkrum styttri verkum. Með á tónleikunum leikur eldri strengjasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og einnig mun Gisselle Pinto, fiðlunemandi við skólann leika eitt verk við undirleik Spiccato. Tónleikarnir eru í Bergi, sal Tónlistaskólans og eru tæpur klukkutími að lengd. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir!
9. október 2025
Föstudaginn 10. október eru allir tónlistarkennarar í FT (Félag Tónlistarskólakennara) á svæðisþingi svo kennsla fellur að mestu niður. Nemendur fá upplýsingar hver hjá sínum kennara, en langflestir kennarar við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar kenna ekki þennan dag. Einnig má fá nánari upplýsingar á skrifstofu skólans sem verður opin, sími: 420-1400 eða tölvupóstur: tonlistarskoli@tonrnb.is .
12. maí 2025
Nú fer að styttast í annan endann á skólaárinu hjá okkur í Tónlistarskólanum og hér fyrir neðan má finna Tónvísi - maí 2025, en þar eru allar upplýsingar um dag- og tímasetningar á tónleikum fyrir vorið. Síðasti kennsludagur er svo föstudaginn 23. maí og skólaslit um kvöldið í Stapa kl. 18:00.
6. maí 2025
Umsóknarferli í nýjum gagnagrunni íslenskra tónlistarskóla samræmist því miður ekki þeim kröfum um upplýsingar sem við gerum til umsókna um skólavist. Því biðjum við alla nemendur (forráðamenn) sem stunda nám við skólann á þessu skólaári, að svara þessum tölvupósti. • Þeir sem ætla að halda áfram námi næsta skólaár verða að svara þessum pósti með nafni nemanda og hvort hann ætli að halda áfram námi eða ekki. Allir verða að láta vita af eða á. • Ef þið þurfið að tilkynna breytingar á grunnupplýsingum, eins og um breytt netfang, símanúmer, heimilisfang eða beiðni um að skipta um hljóðfæri eða breyta námshlutfalli, biðjum við ykkur um að láta okkur vita, hvort sem það er um breytingu eða vegna beiðni um annað. Síðasti dagur til að svara þessum tölvupósti og þar með til að tryggja sér skólavist næsta skólaár, er föstudagurinn 9.maí n.k.
Sýna eldri fréttir